Þeistareykir - Svæði 1

Svæðið er afmarkað á korti. Aðkomuleiðir að svæðinu eru tvær, Reykjaheiðavegur upp frá Húsavík og þeistareykjavegur frá Hólasandi (vegur 87). Reykjaheiðavegur/Þeistareykjavegur er uppbyggður og liggur í gegn um Þeistareyki frá Kísilvegi (vegur 87) og niður á Húsavík, þessi vegur liggur að öllum 4 veiðisvæðunum. Fjöldi slóða er á svæðinu sem geta verið þugfærir sökum snjóþyngsla. Öll svæðin eru mjög fjölbreytt en á þeim má finna fjalllendi, hraun, mólendi og gíga. Vegir eða vegslóðar skilja að öll svæðin en ytri mörk þeirra eru sveitarfélagsmörk.

Veiðisvæði 1 á Þeistareykjum afmarkast á eftirfarandi hátt

  • Norður: Afmarkað af sveitarfélagamörkum við Norðurþing.
  • Suður: Samkvæmt hnitum og útlínum á korti.
  • Austur: Klifveggur, Tjarnarás og nýji Þeistareykjavegur sunnan Tjarnaráss og afmörkun bannsvæðis.
  • Vestur: Afmarkað af sveitarfélagamörkum við Norðurþing.

Svæði 1 er 4365 hektarar að stærð.

Bannað er að veiða á aðliggjandi svæði í kringum Þeistareykjavirkjun og suður með Bæjarfjalli, upp að rótum Ketilsfjalls og fjallsbrún Bæjarfjalls.

Nafn: Ingimar Ingimarsson
Heimilisfang:
GSM 693-3929
Netfang ingimar@thingeyjarsveit.is